Þjónusta
Öll þjónusta á einum stað einfaldar þína flutninga.

Flugfrakt
Fáðu tilboð í flutninginn eða settu þig í samband við sérfræðinga okkar og komum vörunni heim str

Sjófrakt
Fáðu tilboð í flutninginn eða settu þig í samband við sérfræðinga okkar og komum vörunni heim str

Allt sem þarf til að klára flutninginn
Að auki bjóðum við uppá heildarlausnir sem tryggja að sendingar komist örugglega og sjálfvirkt alla leið.
- 01
Tollskjalagerð
Við tollafgreiðum allar sendingar samdægurs sé þess óskað. Starfsfólk okkar hefur margra ára reynslu og sérþekkingu á tollskjalagerð og tollflokkun. EDI samskipti við tollayfirvöld tryggja skjóta og örugga þjónustu.
Fylgiskjöl sem þarf að leggja fram með tollskýrslu eru:
- Farmbréf
- Vörureikningur
- Komutilkynning
- EUR-skírteini eða EUR-áritun ef vara er frá EFTA- eða ESB-löndum
Við önnumst öll samskipti við Tollstjóra og sendum þér skýrslur og gögn á rafrænu formi að lokinni þjónustu.
- 02
Vöruhús
Við viljum að sendingin þín skili sér hratt og örugglega á áfangastað, því leggjum við mikinn metnað í að afgreiða sendingar inn i vöruhús til okkar. Flugfraktin snemma morguns eða lausavörusendingar í gámum, allar sendingar fá rétta meðhöndlun og umsýslu. Við látum þig svo vita þegar varan er komin í hillu og tilbúin til afhendingar. Þú kemur þá til okkar og sækir eða nýtir þér akstursþjónustu okkar heim að dyrum.
- 03
Akstursþjónusta
Í samstarfi við Fraktlausnir og Póstinn bjóðum við upp á heimsendingar á vörusendingum. Samdægursþjónusta á höfuðborgarsvæðinu, og varan skilar sér daginn eftir á landsbyggðinni. Á sama hátt náum við í sendingar til útflutnings og komum þeim til hafnar eða á flugvöll.
Sparaðu tíma og fyrirhöfn og láttu okkur um aksturinn
Útflutningur
